Lífsleiknibúðir fyrir krakka í 5. – 6. bekk grunnskóla

Lífsleiknibúðir í Vindáshlíð hafa það að markmiði sínu að efla borgaravitund nemenda, elfa siðferðiskennd þeirra, huga að sanngirni, efla sjálfstæði þeirra til að setja fram skoðanir sínar, efla samskiptahæfni nemenda, skapa jákvæðan bekkjar- og skólabrag og margt margt fleira.

Vindáshlíð er staðsett í um 40 mínútna fjarlægð frá Reykjavík á fallegum stað í Kjósinni. Staðurinn hefur upp á gríðarlega margt að bjóða þar sem náttúran skipar stórann sess.

Lífsleiknibúðir standa skólum til boða. Hugmyndin er að nemendur og kennarar komi saman á staðinn og vinni að jákvæðum markmiðum nemendanna og hópsins. Fyrir heimsóknina er gert ráð fyrir að farið verði í gegnum ákveðið námsefni og boðið er upp á námsefni sem nota má í eftirfylgni eftir að heim er komið.

Hafið samband í gegnum netfangið lifsleiknibudir@lifsleiknibudir.is eða í síma 588 8899 og fáið nánari upplýsingar.